Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Jæja gott fólk......tími til að tengja?

Nú er komið nóg af gráti og gnístran tanna. Hvernig væri að fara að spýta í lófana og fara að gera eitthvað? Við höfum séð það svart áður hér á Íslandi og eigum ugglaust eftir að sjá svoleiðis aftur. Það herti okkur og í raun erum við alveg gallharðir naglar, sem köllum nú ekki all ömmu okkar. Til fjandans með það sem liðið er. Það verður ekki aftur tekið, en vonandi lærum við okkar lexíu á þessu. Þó eitthvað góðærisrugl komi upp, að þá er betra að taka því með varúð. Láta ekki bankaforkólfa og misvitra fjármálasnillinga glepja okkur sýn. Við verðum líka að vera á vaktinni og láta í okkur heyra þegar okkur finst það. Það er í raun handónýtt, að menn skuli ekki þora að tjá sig um það sem manni finnst miður vera að fara. Þetta hefur verið viðloðandi og hálfgerð lenska hér. Það er auðvitað yfirvalda að sjá til þess að einhverjir glópar séu ekki að nota sér aðstöðu sína til þess að ná sér niðri á einstaklingum, þó þeir séu að tjá sig með stórum bókstöfum á dálítið krydduðu máli.

Látum Jóhönnu sjá um þetta og vonandi gengur dæmið upp. Ekki það að ég efist um að svo verði. Það verður bara að sýna sig hvort hún veldur þessu. En það er ekki nóg. Allir okkar ráðamenn verða að koma að málinu, og miðla því sem þeir kunna best. Ekkert skrattans pólitíkusara bull. Látum vaða, og sýnum öllum þeim sem halda eitthvað annað, að við erum full fær um, að takast á við vandamálin.

Áfram nú.


Ekki borga IceSave.....og Ísland einangrast...ha?

Ísland verður á sama stalli í samfélagi þjóðanna og Norður Kórea og Kúba ef Alþingi samþykkir ekki Icesave-samningana segir Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor. Hann segir að stríðsástand gæti skapast í íslensku efnahagslífi, fyrirtæki færu í fjöldagjaldþrot og Ísland fengi hvergi fyrirgreiðslu í heiminum.

>>>

 N-Kórea er ekkert einangruð. Þeir gera bara það sem þeim sýnist. Og þeir nota peningana sína í vopn, í stað þess að kaupa rusl. Land í einangrun hefði ekki bolmagn til þess að smíða kjarnorkuvopn og eldflaugar til þess að bera þau. Hafnbann virkar ekki, því Kína er með opna leið þangað.

Cuba var og er ekki einangruð. Rússar sáu til þess. Og Spánn hefur alla tíð haft samband við þá. Þó þeir hafi ekki getað keypt bílavarahluti frá BNA, þýðir ekki að þeir séu í einangrun.

Kannski er það nú líka bara best fyrir okkur Jónana að við fáum ekki fyrirgreiðslu. Hún er búin að vera okkur dýr fyrirgreiðslan undanfarin ár.

 

og

Þórólfur Mattíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir að draga þurfi úr útgjöldum eða hækka skatta til þess að mæta mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar.

>>> Ja, hvílík viska. Ég hefði aldrei látið mér detta slíka snilld í hug. Ég er alveg dolfallinn, þvílík lausn. Auðvitað þetta er lausnin.

code

Hagfræðiprófessor segir að afborganir af Icesave-láninu setji þjóðarbúið ekki á hliðina. Greiðslurnar jafngildi því að slökkt væri á álverinu á Reyðarfirði og Kárahnúkavirkjun og þau ekki sett í gang aftur fyrr en að 8 árum liðnum. Eftir rúm 7 ár hefjast greiðslur af Icesave-láninu. Lánið er upp á um 650 milljarða króna með vöxtum upp á 5,5%. Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands hefur reiknað út hve miklar afborganirnar verða.

Hann gerir ráð fyrir að þegar eignir Landsbankans hafi gengið upp í skuldina standi eftir 10-25% eða 65 til rúmlega 160 milljarðar króna.  Hann segir mikla óvissu vera í útreikningunum og ekki séu allar staðreyndir á borðinu. Hann telji þó að fyrsta greiðslan muni nema 0,5-1,5% af landsframleiðslu það ár.

Hvaða karl er nú þetta? Hvað er hann að gera í háskóla? Mín skoðun er sú, að það sé nú ekki skrítið að Ísland skuli vera á hliðinni með kandídata frá þessari deildinni.

og hana nú.

 


Michael farinn.....í sína síðustu ferð.

Blessaður karlinn. Allt tekur þetta enda einhvertíma. Ég man eftir honum sem litlum amerískum strák af afrísku bergi brotnu, eins og það er kallað. Hann söng I´ll be there, og for beint inn í hjartað á milljónum manna. Til þess að gera langa sögu stutta, varð ég næst fyrir áhrifum þegar hann kom með Billie Jean, og ég fæ enn smá fiðring í lappirnar þegar ég heyri þá musik. Það bara gæti valdið slysi að láta það eftir sér að sprella. En þegar hann dó, var hann allt annar en sá litli. Ég velti því stundum fyrir mér, hvernig svona total umskipti á útliti eins manns gæti gerst. Reyndar á löngu tímabili, en samt. Leyndarmálið fer sennilega með honum í gröfina. En mér finnst þessi sem var að yfirgefa okkur, bara alls ekki sami og sá litli. Kannski var þetta bara alls ekki sami maðurinn. Hver veit það? En honum tókst að verða múltimilli á þessu brölti, og er það bara vel, enda skildi hann ekki eftir sig brunarústir neinstaðar og er því vel liðinn. Reyndar kom hann með mjög grípandi ballöður og eiga örugglega margir íslenskir krakkar honum að þakka tilveru sína. Byrjaði á diskógólfinu með Billie Jean. Alveg frábært. En auðvitað var líka um búmm að ræða, og ekkert kom út úr því, samanber vísuna góðu sem ég man ekkert hver samdi.

Dívaninn er þarfa þing,

Þreyttum værðir gefur,

efni í margan íslending

í hann fallið hefur.

Guð blessi rokk-kónginn.

og hana nú.


mbl.is Michael Jackson er látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fastur í netinu..........ha?

Nú þykir mér týra. Hannes farinn að biðja sér vægðar. Í upphafi skal endinn skoða. Ég vil minna á að þúsundir, börn, foreldrar afar og ömmur, langafar og langömmur, þurfa að taka út skerðingar á lífsgæðum ásamt niðurlægingu sem af því hlýst, að lenda í algjöru þroti. Svo langar Hannes kallinn til þess að koma því á framfæri að börn og skyldmenni kunni að verða fyrir hnjaski í umræðunni. Tja, nú er ég svo aldeilis hissa. Það er hægt að glenna sig svo mikið að klofbótin fari úr, og þá koma skrítin sköpin í ljós og dingla fyrir allra augum. Þá eru góð ráð fá, og dýr. Ekki hægt að komast hjá því að þeir sem að manni standa verði að athlægi með manni sjálfum.  Þessi tæra snilld sem menn voru að flíka, var jú bara húmbúkk og kjaftæði, og þegar upp er staðið, voru þessir snillingar, bara kjánar. Búnir að koma landi og líð í gapastokk. Svo reikna þeir með því að einhverjir vorkenni þeim, og tali varlega um andskotaganginn. Og svo ætla menn, að það sé einhver vörn í því, að rífa kjaft og tala um ólöglega leit, slæm áhrif á aðstandendur, nornaveiðar, og hver veit hvað. Ég hefði kannski í minni villtustu fantasíu fengið smá vott af samúð, ef einhver af þessum glópum hefði gengið fram fyrir skjöldu, og viðurkennt opinberlega heimsku sína og græðgi með tilheyrandi aðgerðum. T.d. að veita upplýsingar sem ekki eru helber lygi og greiða þannig fyrir lausn á flækjunni. En það er tómt mál að tala um. Þannig að klofbótin er enn rifin og gatið heldur áfram að stækka bæði fram og aftur. Það gæti orðið svakalegt það sem á eftir að koma í ljós þegar buxnastrengurinn fer í sundur.

Persónulega hef ég orðið fyrir tjóni af völdum þessara karla, og áskil mér fullan rétt til þess að fá það tjón bætt. Það væri ekkert of mikið að öll þjóðin tæki sig saman og færi í hópmál við hvern og einn einasta af þessum körlum. Hvor þeir heita Hannes eða Sigurjón, Björgólfur eða Björgólfur Thor, eða Ólafur eða Sigurður, Jón Ásgeir eða Pálmi, eða hvaða sem er. Alla saman. Þeir gætu kannski farið í hópvörn. Hver veit?

Svo langar mig líka að minna Hannes og lögspekinginn hans á það að hér er ekki um nornaveiðar að ræða, eða blóraböggulsleit. Þetta er alveg grafalvarlegt mál, og eins og staðan er í dag, þegar fullveldi Íslands er í húfi, ásamt sjálfstæði íslendinga almennt. Þessir gjörningar sem framkvæmdir voru af glæfrakörlunum, eru þannig vel inni á gráu svæði hvar landráð varðar. Landráð, förulandssvik, eru alverstu og svívirðilegustu glæpir sem hægt er að hugsa sér, og öll fullvalda ríki áskilja sér rétt til þess að beita alhörðustu refsingu sem til er við slíku. Það er ekki viðtekin venja í Noregi að beita slíkri refsingu. En menn hikuðu ekki við Quisling. Hann setti Noreg í verulega hættu með framferði sínu. Markmið hans var að skara eld að eigin köku á kostnað föðurlandsins. En þegar upp var staðið, var hann jú bara glópur, sem skoðaði ekki endinn í upphafi. Það þykir líklega ennþá ekki gott að bera þetta ættarnafn í Noregi.

Og hana nú.

 


mbl.is Meint brot Hannesar Smárasonar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greiðsluverkfall..........og hvað svo?

Nú stendur yfir könnun um þann gjörning að hefja greiðsluverkfall. Þetta þýðir í raun ótímabundin greiðslustöðvun. Auðvelt í framkvæmd. Hætta að borga af lánunum og basta. En hvaða afleiðingar hefur það? Kerfið heldur áfram að vinna, og upp hlaðast allskonar gjöld og sektir. Þeir sem ætla að taka á sig rögg og fara í greiðsluverkfall, eru greinilega tilbúnir að gang út úr samningnum án nokkurra skilyrða um endurgreiðslu á meintri eign þeirra í hinu veðsetta. Semsagt ganga út. Sumir hafa engu að tapa fjárhagslega. Aðrir einhverju, frá því að vera lítið upp í stórfellt tap. Það er í rauninni ekki aðalatriði hversu stórt tapið er í fjármunum, heldur er gjörningurinn aðalatriðið. Þetta hefur ekki verið reynt áður af samtökum, með eitthvað á bak við sig eins og lögfræðiaðstoð í komandi atlögu. Áður voru það bara einstaklingar og fyrirtæki sem hættu að borga af lánum vitandi hvernig það myndi enda. Þetta hefur verið í gangi í mörg ár, og var ein af tekjulindum peningastofnana, hvort sem þar var um að ræða banka, húnæðismálastofnun, eða lífeyrissjóði. Allar þessar stofnanir mökuðu krókinn þannig. Það kæmi mér ekki á óvart, að heildareign landsmanna í fasteignum á landinu hafi farið í gegn um ferlið , þannig að bankarnir hafi náð til sín eignaupptöku a.m.k. einu sinni á hverja eign að meðaltali. Þetta eru einhverjir þúsunda milljarðar í gegnum tíðina. Þar fyrir utan náðu þessar stofnanir sér í fjármuni á ýmsa vegu, allar gróðavænlegar, nema kannski sjálf útlánin, sem áttu jú að vera sá business sem þessar stofnanir voru í. Þau skiluðu vöxtum sem voru alls ekki sú tekjulind sem þessar stofnanir urðu feitar á. Það voru eignaupptökurnar, verðbæturnar, vanskilagjöld, okurdráttarvextir, FIT kostnaður, seðilgjöld og allskonar þjónustugjöld, sem voru tekjulindirnar. Allt saman tekjur af liðum sem voru ekki voru tilgreindar á áætlun. Aðeins mismunur á útlánsvöxtum og innlánsvöxtum var það sem í hendi var. Og það gaf ekki það í kassann sem eigendur stofnananna gátu sætt sig við. Ávöxtunarkrafa var algengt orð, þegar eitthvert okur atriðið var sett á laggirnar. Ekki svo mikið minnst á ávöxtunarkröfu núna. Þess þarf ekki. Það atriði er sjáfvirkt núna. Núna eru verulega feitir dagar framundan hjá sumum og verða enn feitari þegar fólk fer að sjá aðeins upp úr skuldafeninu, og fer að fjárfesta aftur í eignaupptökunni. Svo byrjar sami hringurinn aftur. Enginn hefur lært neitt nýtt. Sama gryfjan, á sama stað, jafn djúp með jafn háu falli. Ekki einu sinni Asni með gulrót mundi falla í sömu gryfjuna aftur. 

Og hana nú.


mbl.is Ætla að boða greiðsluverkfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eyðilagði íbúðarhúsið.............sitt. Jawoooool.

Þar kom að því að einhver fékk upp í kok af aðgerðum og aðgerðarleysi. Aðgerðum bankanna í að gera stórfelda eignarupptöku á landinu, og aðgerðarleysi valdsins til þess að koma í veg fyrir það. Það getur varla verið meira ábyrgðarleysi að ræna bankann eignum sínum en að vera rændur eignum sínum af bankanum. Það kemur auðvitað hvergi fram í hvaða hlutfalli eignarstaðan var á eigninni þegar  húsið var boðið upp, hvað fékkst fyrir það og hvað fyrri eigandi fékk af því. En af biturri reynslu af svona aðgerð sem uppboðsferli er, segir mér svo hugur, að eignin hafi verið slegin nákvæmlega til lúkingar lánaveði bankans ásamt vöxtum og vaxtavöxtum, innheimtukostnaði, lögmannskostnaði, seðilgjöldum og name it. EÐA lægri upphæð og kemur þá fyrri eigandi til meða að sitja uppi með afganginn af skuldinni, til eilífðar ef bankanum þóknast það. 

Þegar svona gjörningur hefur átt sér stað, og bankinn búinn með stimpli frá sýslumanni, að eignast húsið, kemur fyrri eiganda ekki við hvað svo bankinn fær fyrir eignina síðar. Ef hærra verð fæst en eignin var slegin á, er það gróði til bankans eða umboðsmanna hans. Ekki grænn eyrir rennur til fyrri eiganda til greiðslu á eftirstandandi skuldum ef einhverjar eru. Og ef hann reynir að afla sér upplýsinga um hvað bankinn hafi svo fengið fyrir eignina síðar, kemur hann að lokuðum dyrum. Þó það sér ólöglegt. En bankarnir selja oftast (alltaf) svona eignir í gegnum fasteignasölur, vegna þess að þær geta falið sig á bak við trúnað við viðskiptavini. Svona er nú það.

Nú en þetta var greinilega athafnamaður og lét hann verkin tala með stæl. Þ.e. kvikmyndatöku og áhorfendum. Embættisblókin sem kom svo spásserandi að og hringdi í pólitíið, var alveg orðlaus. Engin furða. Að menn skildu dirfast svona lagað. Nú maðurinn hefur ruglast í rýminu, alveg eins og útrásarvíkingarnir, ríkisstjórnin, fjármálaeftirlitið, seðlabankastjórinn, bankastjórarnir, lögfræðingarnir, endurskoðendurnir og ekki síst forseti lýðveldisins sjálfur. Þeir í sameiningu rústuðu heilu samfélagi í núinu, og um ófyrirséða framtíð. Þannig að þetta er að smita út frá sér. Endar með því að allt þjóðfélagið verður ruglað, og fer í upplausn. Menn fara kannski í það að eyðileggja allt sem tekið hefur verið með valdi, eða útrásarblekkingum. Ég er t.d. alveg hissa á því að útrásarjepparnir fái að vera í friði þar sem þeim hefur verið plantað fyrir utan spilaborgirnar. Sérstaklega vegna þess að blekkigarleikurinn er enn á fullu hjá okkur. Ekkert lát á því atriði, og meira að segja margir af sömu persónum í leiknum. Ég er alveg orðlaus eins og blókin á Álftanesinu.

Viiiiiiiiið veeeeeerðum að staaaanda saaaaaaaaman segja forystusauðirnir með skjáfandi röddu. Auðvitað meina þeir, "Þiiiiiið" því ekki taka þeir þátt í fallítum, skerðingu launa, skerðingu á heilsuþjónustu eða menntun fyrir afkomendurna. Þeir fara bara í bankann sjálfir og slá strikum yfir fallítin sín. Þeir fara bara í einkaþotu til N.Y. í aðgerð, þegar gyllinæðin fer að angra þá verulega. Þeir senda bara króana í Oxford og enginn veit neitt. Mjög þægilegt, enda eru Það allir hinir sem erum VIIIIIIIIÐÐÐÐÐÐÐ.

Og hana nú.


Magnús Þorsteinsson farinn til Rússíá.........Ha? Að gera HVAÐ?

Sagt var að Magnús hafi stungið sér til Rússlands og þar með kominn út úr lögsögu, og ekki hægt að hrófla við honum. Allt í góðu með það. Í hans stöðu hefði ég ugglaust gert það líka. Og sérstaklega ef ég hefði þá aðstöðu sem hann hefur. Nokkuð ljóst að það er stór og ljótu maðkur í mysunni þegar svona getur viðgengist.

Skoðum hver er ræðismaður íslands í St. Pétursborg.

 

RÚSSLAND
(Russian Federation)
(Landsnúmer: 7)
Moskva

Moskva (Embassy of Iceland)

Skrifstofa: Khlebnyi Pereulok 28, RU-121069 Moscow
Afgreiðslutími: 09:00-17:00 (Mon-Fri)
Sími: (503 eða 495) 956 7604/5/6
Telefax: (503 eða 495) 956 7612
Símnefni: Isambassade
Netfang: emb.moscow@mfa.is
Vefsíða

Tungumál: Íslenska, Rússneska, Enska

Sendiherra: Benedikt Ásgeirsson (2006)
Sendifulltrúi: Magnús K. Hannesson (2004)
Viðskiptafulltrúi: Yury Korolev (2005)
Sendiráðsfulltrúi: Sigrún Ingibjörg Jónsdóttir (2008)
Bifreiðarstjóri: Alexander Tismili (2008)
Ritari: Évgenía A. Kisileva (2001)
Ritari: Irina Bolshakova (1991)



Fyrirsvar
Sendiráðið í Moskvu annast sendiráðsstörfin

Murmansk
Ræðismaður: Hr. Vitaly Petrovich Kasatkin
Skrifstofa: Ultisa Lenina 65, Murmansk
Sími: (8152) 454 268
Fax: (8152) 454 268
Netfang: sfen@kitm.ru

Sankti Pétursborg
Ræðismaður: Hr. Magnús Þorsteinsson
Skrifstofa: Ul. Telmana 24, St. Petersburg
Sími: (812) 326 8580
Fax: (812) 326 8588
Netfang: magnus@eimskip.is

Ég segi nú bara það sama og Tumi Engispretta þegar Gosi var vakinn til lífsins " JA ALLT ER NÚ HÆGT NÚ TIL DAGS"

Ekki finnst mér þetta nú við hæfi. Og þar að auki með netfang hjá eimskip.is 

Og hana nú!


Birna Einarsdóttir og LeiðtogaAuður.........Ha?

Ég er búinn að vera latur við þetta, enda margt á könnunni. Aðallega kaffi þó.

Það verður að teljast nokkuð skringilegt, að Birna Einarsdóttir núverandi bankastjóri Íslandsbanka, skuli vera þar. Nokkuð ljóst að hún varð uppvís að því að reyna sjálfsauðgun í krafti stöðu sinnar, eins og margir aðrir. Nokkrir af þeim kónum eru undir eftirliti grunaðir um lögleysu í þessum viðskiptum. Mitt mat er þó það að allir þessir gjörningar hafi verið lögleysa, a.m.k. siðleysa, en þetta tvennt, er nú eiginlega sami kúkurinn í sama koppi. Einnig verður það að teljast það sama að framkvæma, og reyna að framkvæma í svona málum.  Það að gera tilraun til dráps er litið alvarlegum augum, þótt drápið mislukkist. Eiginlega ætti það að vera litið alvarlegri augum ef það lukkaðist ekki, því fórnarlambið situr uppi með afleiðingarnar. Ef fórnarlamið deyr, er auðvitað ekki gott að segja hvað það situr uppi með, enda fellur það ekki undir jarðneskar rannskóknir að finna út úr því. Nú tilraun Birnu mislukkaðist og hún heldur í alvöru, að þar með sé hún stikk frí og komin í borg. Mér hefur nú fundist á umræðunni, að það séu nú ekki allir sáttir við þá skoðun hennar. Enda situr fórnarlambið (þjóðin) uppi með afleiðingar þeirrar drápstilaunar sem gerð var, einnig hún tók þátt, þrátt fyrir allt. En nú er það spurningin. "Hvers vegna í ósköpunum er hún bankastjóri ennþá"? Hverjir ráða þessu eiginlega? Getur það verið að drápskandidatinn gangi enn laus? Á að gera aðra tilaun seinna, þegar hinir sem nú eru að taka út ósómann eru búinr að borga. Þetta fólk sem var staðið að svona gjörningum er ekki með móralinn í lagi, algjörlega burtséð frá reynslu og útliti. Það er til fólk sem getur alveg tekið við þessum störfum sem ekki eru með svartan blett, hvernig svo sem það reynist þegar á hólminn er komið. Það er athyglisvert, að ný mafía (kolkrabba-, smokkfiskseinkenni) er að líta dagsins ljós og heitir LeiðtogaAuður. Sjálfu sér ekkert við svona klúbb að athuga, nema kannski vegna innhald meðlimalistans þeirra. http://www.leidtogaaudur.is/FelagatalOgFerilskrar/  Það er athyglisvert, að þarna er samankominn listi yfir allskonar framapotara, líkt og í áðurnefndum fiskaklúbbum. Meira að segja a.m.k. einn alþingismaður (kona auðvitað). Hvort það er góður eða vondur stimpill, þá er það stimpill. Ég man það nú ekki gjörla, en það er eins og mig mynni, að það hafi verið einhverjar Auðar, sem voru að monnta sig af því, að hafa ekki tekið þátt í útrásar-glæpaferlinu, og þess vegna ættu þær möguleika á að sýna alþjóð hver góðir kapitalistar konur gætu verið. En það er varla með Birnu Einarsdóttur innanborðs. Auðvitað tala ég bara fyrir mig, og það er mitt mál að LeiðtogaAuður er ekki góður pappír með svona áhafnarmeðlimi.

Það er nokkuð ljóst af þessu öllu saman, að bönkunum er alls ekki treystandi, þótt í "ríkiseign" séu. Ég ætla því að leggja til við frændur okkar færeyinga að þeir mæti hér með Föreyjabanka og gefi okkur sem erum að blæða í dag, sjens á að vera með það sem eftir er, þegar blóðpeningarnir hafa verið mjólkaðir, í almennilegri peinigastofnun. Ég á ekki von á því að færeyskir víkingar fari að reyna kaup á Kongens Nytorv, eða Piccadilly Circus, hvorki nú eða í framtíðinni. Þannig að fjármunirnir séu á réttum stað á réttum tíma. Ekki í Faersave eða n-Icesave eða einhverju öðru save, sem er svo ekkert save. Mér sýnist að þeir ætli sér að kaupa tryggingarfélag hér, til þess að standa í tryggingum en ekki fjáraustri í allar áttir.

Og hana nú. 


Höfundur

Guðjón Emil Arngrímsson
Guðjón Emil Arngrímsson

Nýjustu myndir

  • Ice...
  • AFTUR !!
  • ...age1_870273

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband