Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Lánin mögulega lögbrot???

Mbl. sunnudaginn 25. janúar. Ja hér og hérna. Menn virðast ekki vera vissir um það, hvort lögbrot hafi átt sér stað. Kannski gjörningurinn sjálfur þegar hann var framinn, en afleiðingarnar eru hreint glæpsamlegar. Þeir sem sáu um framkvæmdina, máttu líka sjá afleiðingarnar, og þar með vitað að þeir voru að fremja glæpsamlegt athæfi. Það er ekkert glæpsamlegt við það, að mixa saman köfnunarefnis-áburði og olíu. En ef það spryngur og veldur mönnum ög öðrum tjóni, eða líftjóni, þá er komin upp önnur staða. Sennilega væri þá slík blöndun orðin glæpsamleg.

Ég heyrði það í Silfri Egils í gærkvöld, að Vilhjálmur Bjarnason er sammála mér, að þessir menn hafi gerst sekir um landráð. Nú jæja. Þjóðarráð eða byltingarráð hefði þá það hlutverk, að fletta ofan af svikunum. Þeim mönnum og konum sem hafa setið við stjórnvölinn undanfarin ár er ekki treystandi fyrir nýju Íslandi. Ég held að það ætti að láta allt liðið fjúka til þess að skapa allavega andrúmsloft sem ekki er þrungið vantrausti. Með algjörlega nýju fólki án ráðgjafar frá gamla liðinu getur orðið sæmileg sátt, þrátt fyrir að það verði aldrei aftur hægt að treysta nýjum stjórnendum landsins algjörlega með gömlu fyrirkomulagi. T.d. engar nýjar einkavinavæðingar. Ef einhver minnsti vafi er um einkavæðingu er til staðar, þá verði það slegið af. Allur veiðikvótinn sem settu hefur verið í hendur einstaklinga? Ríkið getur núna gengið að veðunum í þeim og hirt þá til baka. Síðan verði kvótinn leigður út þar til töpuð útlán vegna kvótans hafa verið greidd. Síðan geta menn svo reynt að átta sig á því hvernig rástafa skuli veiðiheimildum þó án þess að einhver annar en ríkið geti eignast þær. Veiðiskipin verði hirt upp í skuldir ef þær eru fyrir hendi. Þeir menn sem hafa slegið lán út á veiðiheimildir og flutt það fé úr landi, verði líka settir undir sama hatt og þeir sem rændu bankana. Og svo framvegis. Það er af nógu að taka. Það má alveg nota næstu 20 til 30 árin í að rannsaka þessi mál alveg niður í kjjölinn. Allt frá þeim tíma þegar framsóknarforkólfurinn vann ötlulega að kvótaúthluninni sér og sinni familíu til auðgunar. Allir vita hvernig þetta gerðist, sem vilja vita þetta. Það bara þorir enginn að segja það. Það þorir enginn að segja það sem þarf að segja. Menn þegja bara þunnu hljóði. Allir stjórmmálamenn hvar í flokki sem þeir eru voru að einhverju leiti inni í þessari svikamillu. Þetta á líka við þá sem aldrei héldu um stjórnartaumana, en horfðu bara á hvering allt fór til andsk........ 

Hvaðan kom þessi Ólafu Ólafsson? Mér sýnist hann hafi einhvernveginn svikamillað sig upp í það sem hann er núna í gegnu Samskip. En það getur verið að það hafi gerst einhvernveginn öðruvísi. Allavega furðulegt hvernig hann hefur getað rænt þjóðfélagið nánast þegjandi og hljóðalaust. Þetta á nú svosem við fleiri, en það gerir Ólaf ekkert betri, nema síður sé.

UPPL. AURORA

Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, lauk viðskiptafræðiprófi frá Háskóla Íslands 1984. Hann stundaði útflutningsstarfsemi á eigin vegum 1977-1984 og var síðan framkvæmdastjóriIceware Frakklandi og Iceware US 1984-1986. Hann hóf störf hjá Álafossi Inc. 1987 og var forstjóri fyrirtækisins 1990-1992. Þá lá leiðin til Samskipa og þar varð hann forstjóri 1993 og hefur síðan verið starfandi stjórnarformaður frá 2003.

Ólafur hefur verið stjórnarformaður SÍF hf., síðar Alfesca, frá 1999 og var um skeið í stjórnum Olíufélagsins hf. og Kers hf. og var í stjórn Rauða kross Íslands.  Landbúnaðarráðherra skipaði hann í fyrstu stjórn Landbúnaðarsafns Íslands á Hvanneyri árið 2007.

 

Sigurður Einarsson, Hreiðar Már og fl. Úr hvaða jarðvegi spratt þetta illgresi eiginlega. Upphaflega úr Háskóla Íslands sennilega. Við þessir sem sitjum núna eftir í súpunni, borguðum fyrir vafasama menntun þessara manna. Það væri kannski ráð að skoða hvaða kennsluaðferðum er beitt í HÍ með tilliti til þess að þeir ali af sér slík ómenni.

 Aurora.

Sigurður Einarsson

lauk prófi í hagfræði frá Kaupmannahafnarháskóla 1987 og öðlaðist réttindi sem löggiltur verðbréfamiðlai á Evrópska efnahagssvæðinu 1994. Hann starfaði í alþjóðadeild og við fjárstýringu hjá Den Danske Bank 1982-1988 og í alþjóðadeild og við fjárstýringu hjá Iðnaðarbankanum, síðar Íslandsbanka, 1988-1994. Hann var stundakennari í Háskóla Íslands 1993-1997.

Sigurður varð forstöðumaður verðbréfasviðs Kaupþings hf. 1994, forstjóri þess frá 1997 og stjórnarformaður frá 2003 - 2008. Hann hefur setið í stjórnum fjölda dótturfélaga Kaupþings, situr í stjórn Norvestia og var í stjórn Kauphallar Íslands 1996-1997.

Ekki er mikið að græða á að googla Heiðar Már Sigurðsson. Hann er titlaður Skattakónugur alls landsins árið 2007 sjá: http://www.visir.is/article/20070731/FRETTIR01/70731073   hvort það er vafasamur heiður eða ekki...

En hvað sem þessu líður, þá hefur magt verið sagt og spáð, um hverjir hafi komið okkur í þessa stöðu. Hvernig væri að láta á það reyna með nýju Íslandi. Ætli við verðum bara ekki að stokka algjörlega upp og skíra landið okkar upp á nýtt. Það er búið að traðka nafnið Island (Iceland) svoleiðis niður í svaðið, að það mun aldrei ná sér á strik aftur. Nafnið verður alltaf auri atað. Það getum við þakkað þessum vafasömu pappírum sem ég kalla núna landráðamenn.

Og hana nú.


Agnes, blaðamaður fólksins, jahá!

Þegar Agnes skrifar grein um svikamillurnar í bönkunum les ég þær. Hún er fjári beitt, og segir það sem segja þarf. Reyndar er hún undir pressu, þar sem, því miður, að allskonar glæpahyski getur í krafti lagaflækjunnar sem viðgengst hér og í krafti stolins fjármagns farið í dýrar málsóknir. Lögin eru að því að mér skilst hönnuð til þess að halda uppi lögum og reglu í þjóðfélaginu, þannig að jafnvægi sé. Lögin hafa ekki virkað þannig ef menn komast upp með að stela milljörðum út úr þóðfélaginu án þess að vera sóttir til saka. Á bls. 10 í sunnudagsmogganum skrifar hún grein um hvítþvegnu kórdrengina. Reyndar er hún sniðug og fullyrðir ekki neitt, en spyr í staðinn spurninga. Áleitinna spurninga sem eru í sjálfu sér ekki spurningar, heldur fullyrðingar með spurningamerki. Þessi atriði eiga fullan rétt á sér. Viðkomand menn eru auðvitað stórþjófar og ekkert annað. Þeir hafa meðal annarra komið þjóðinni í striðsástand, bæði innanlands og utan. Það má eiginlega segja að Ísland sé komið í stríð við öll ríkustu ríki Evrópu. Innanlands er hinn almenni borgari kominn í stríð við stjórnvöld. All þetta má rekja til óvandaðra manna sem allir vita hverjir eru.

Í striði gilda kannski önnur lög en svona dags daglega. Einskonar neyðarlög. Þau voru notuð í seinni heimstirjöld hér í Evrópu. Norski stjórmmálamaðurinn sem veðjaði á sigur Þjóðverja var dæmdur eftir slíkum. Ég veit ekki hvort hægt er að komast nær föðurlandssvikum, en þeir menn sem eru búnir að valda þessum ósköpum í okkar litla landi, hafa komist. Í raun ætti að setja hér neyðarlög og skækja þá menn sem bera ábyrgð á örlögum þúsunda íslendinga. Að hneppa alla þjóðina í þrældóm um ófyrirséða framtíð hlítur að teljast svik við föðurlandið í heild. Og það finnst mér Agnes sé að segja, þó án þess að segja það. Hún bara spyr.

Líflátsdómar tíðkast ekki hér á landi lengur. En þó er eflaust að finna einhverja lagabálka viðvíkjandi föðurlandssvikum. Mig minnir að ég hafi einhversstaðar séð slíkt. Nú en það þarf ekki að ganga svo langt. Það ætti að vera nóg að fara að tillögum Agnesar að menn verði gerðir útlægir, og eigi ekki afturkvæmt. Þannig að þeirra bíði rannsókn og réttarhöld þar sem sannleikurinn verði dreginn fram og í framhaldi fái menn réttlátann stimpil á sig. Það er ekkert grín að kalla hryðjuverkalög yfir heila þjóð með þeim aðferðum sem þessir kónar hafa beitt.

Auðvitað eru þessir menn ekki hér lengur. Símaviðtöl frá London heitir það í grein Agnesar. Það væri kannski hægt að benda yfirvöldum í Bretlandi á það, að þeir sem settu fjárhag  fleiri þúsund breskra þegna í uppnám og komu af stað óviðunandi stemmningu milli ríkjanna, séu með aurana í þeirra egin landi og séu að sóa þeim þar ásamt þjófsnautum sínum. Nefnilega, að á sama hátt og þessir menn settu mig og þig og börnin okkar í fjárhagslega ánauð til margra ára eða áratuga, verða börn þessara manna þjófsnautar til jafn langs tíma. Allir þeir sem taka þátt í að þyggja frá þessum mönnum, hvort sem það er lífsviðurværi eða þáttaka í umsvifum, eru þjófsnautar og eru að notast við þýfi. Það gilda ákveðin lög og reglur um slíkt hér á landi.

Það gildir einu hversu menn eru í óða önn að klóra yfir fólskuverkin sín hér, og kórdrengjatal um sakleysi sitt, þá verða þessi atriði hangandi yfir þeim til framtíðar. Þeir höfðu tíma til þess að moka yfir a.m.k. jafn mikinn skít og þann sem enn sést. Sennilega sést mun minna af skítnum þeirra heldur en það sem tókst að grafa niður. En þó skíturinn sé niðurgrafinn, er hann enn til staðar. Það hverfur ekkert algjörlega. Það verður hægt að finna þetta með réttum aðferðum.

Ég hefði ekkert á móti því, að þjóðstjórn tæki hér völdin, og þar með byltingarráð. Fyrrverandi stjórnendur í þjóðfélaginu ynnu að því með nýjum mönnum, að fletta ofan af skítverkunum, og koma böndum á það sem hægt er að koma böndum yfir. Öll lög sem standa í vegi fyrir því, að hægt sé að rannsaka þessi mál niður í kjölinn, með hvaða aðferðum sem duga, ættu að vera sett í salt þar til byltingunni er lokið. Nornaveiðar eða ekki. Nornaveiðar voru notaðar til þess að koma venjulegu fólki á bál ef það setti fram eitthvað atriði sem stangaðist á við hagsmuni kirkjunnar á sínum tima. Það voru engar nornir til, en þetta dugði til þess að hafa ákveðinn hemil á fjöldanum. Það má líka snúa þessu við. Koma þessum gaurum í þannig aðstöðu, að aðrir fari ekki að reyna svona viðbjóð í framtíðinni.

Og hana nú!


Höfundur

Guðjón Emil Arngrímsson
Guðjón Emil Arngrímsson

Nýjustu myndir

  • Ice...
  • AFTUR !!
  • ...age1_870273

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband